Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 04. maí 2015 19:30
Magnús Már Einarsson
Benzema ekki með í undanúrslitunum á morgun
Karim Benzema er meiddur.
Karim Benzema er meiddur.
Mynd: Getty Images
Real Madrid verður án Karim Benzema gegn Juventus í undanúrslitum Meistaradeildarinnar annað kvöld.

Benzema hefur verið frá keppni vegna hnémeiðsla undanfarnar vikur.

Þessi 27 ára gamli Frakki hefur skorað 22 mörk á tímabilinu en nú er ljóst að hann verður ekki með á morgun.

Gareth Bale er hins vegar í góðu lagi eftir að hafa verið að glíma við meiðsli á kálfa.

Luka Modric verður aftur á móti ekki með vegna meiðsla á hné.
Athugasemdir
banner