Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 04. maí 2015 18:18
Elvar Geir Magnússon
skrifar frá KR-velli
Byrjunarlið KR og FH: Grétar Sigfinnur byrjar
Grétar Sigfinnur Sigurðarson.
Grétar Sigfinnur Sigurðarson.
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
El Clasico íslenska boltans verður í kvöld þegar KR og FH eigast við í Frostaskjólinu. Risaleikur strax í fyrstu umferð. Þetta eru þau tvö lið sem er spáð efstu sætum deildarinnar, FH er spáð Íslandsmeistaratitli en KR öðru sæti.

Bein textalýsing:
19:15 KR - FH

Óskar Örn Hauksson er mættur aftur í íslenska boltann og er í byrjunarliði KR í kvöld. Grétar Sigfinnur Sigurðarson er í byrjunarliðinu. Gunnar Þór Gunnarsson er ekki með og líklegt að Grétar sé í öðrum bakverðinum.

Gary Martin er á toppnum og á vængjunum Óskar Örn og Sören Frederiksen.

FH-ingar eru komnir í leikaðferðina 4-4-2. Sjáum hvernig það tekst til. Annars kemur ekkert á óvart í byrjunarliði FH. Þórarinn Ingi Valdimarsson er meiddur og er ekki með.

Byrjunarlið KR:
Byrjunarlið:
1. Stefán Logi Magnússon (m)
2. Grétar Sigfinnur Sigurðarson
3. Rasmus Steenberg Christiansen
4. Gonzalo Balbi Lorenzo
5. Skúli Jón Friðgeirsson
7. Gary John Martin
8. Jónas Guðni Sævarsson
10. Pálmi Rafn Pálmason
19. Sören Frederiksen
20. Jacob Toppel Schoop
22. Óskar Örn Hauksson

Byrjunarlið FH:
1. Róbert Örn Óskarsson (m)
5. Pétur Viðarsson
6. Sam Hewson
7. Steven Lennon
10. Davíð Þór Viðarsson
11. Atli Guðnason
15. Guðmann Þórisson
18. Kristján Flóki Finnbogason
21. Böðvar Böðvarsson
22. Jeremy Serwy
26. Jonathan Hendrickx

Bein textalýsing:
19:15 KR - FH
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner