Vinstri bakvörður Skagamanna, Darren Lough fór meiddur af velli í hálfleik í 0-1 tapi liðsins gegn Stjörnunni í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar.
Darren hefur verið að glíma við meiðsli í kálfa síðustu tvær vikur en hann náði að æfa með liðinu síðustu æfingar fyrir leik.
Darren hefur verið að glíma við meiðsli í kálfa síðustu tvær vikur en hann náði að æfa með liðinu síðustu æfingar fyrir leik.
„Það er ekki komið á hreint hversu lengi hann verður frá. Við ákváðum að prófa hann í leiknum. Hann var greinilega ekki orðinn eins góður og við bjuggumst við," sagði Gunnlaugur Jónsson aðspurður út í stöðu mála hjá Darren.
Það verður nýliða slagur í Pepsi-deildinni í næstu umferð þegar Skagamenn heimsækja Leikni heim í Breiðholtið. Gunnlaugur segir að það sé spurningarmerki hvort Darren verði klár fyrir þann leik.
„Það verður að koma í ljós þegar líður á vikuna. Það er enn nægur tími í leikinn," sagði Gunnlaugur en leikurinn gegn Leikni er á mánudaginn 11. maí.
Athugasemdir