Hull City 1 - 3 Arsenal
0-1 Alexis Sanchez ('28)
0-2 Aaron Ramsey ('33)
0-3 Alexis Sanchez ('45)
1-3 Stephen Quinn ('56)
0-1 Alexis Sanchez ('28)
0-2 Aaron Ramsey ('33)
0-3 Alexis Sanchez ('45)
1-3 Stephen Quinn ('56)
Arsenal var við algjöra stjórn í öruggum sigri á fallbaráttuliði Hull City í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni.
Alexis Sanchez gerði fyrsta mark leiksins áður en Aaron Ramsey bætti öðru við eftir stoðsendingu frá Santi Cazorla sem var magnaður í leiknum.
Sanchez gerði þriðja mark leiksins rétt fyrir hálfleik eftir stoðsendingu frá Ramsey.
Hull minnkaði muninn í síðari hálfleik þegar Stephen Quinn skoraði á 56. mínútu, en Lee Mason dómari leiksins missti af augljósu sóknarbroti í aðdraganda marksins.
Meira var ekki skorað og auðveldur sigur Arsenal staðreynd. Arsenal er á svakalegri siglingu og er í þriðja sæti deildarinnar, með jafn mörg stig og Manchester City sem er í öðru sæti og leik til góða.
Hull er hins vegar einu stigi frá Sunderland, sem er í fallsæti og á leik til góða gegn Arsenal.
Athugasemdir