Cagliari 4 - 0 Parma
1-0 Albin Ekdal ('3)
2-0 Diego Farias ('14)
3-0 Paul-Jose M'Poku ('38)
4-0 Duje Cop ('63)
1-0 Albin Ekdal ('3)
2-0 Diego Farias ('14)
3-0 Paul-Jose M'Poku ('38)
4-0 Duje Cop ('63)
Cagliari skoraði fjögur gegn botnliði Parma sem var fallið úr ítölsku efstu deildinni fyrir leikinn í kvöld.
Cagliari komst tveimur mörkum yfir á fyrsta korteri leiksins og þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir gestanna til að minnka muninn bættu heimamenn tveimur mörkum við áður en flautað var til leiksloka.
Cagliari er í fallsæti og þarf að vinna upp sex stig í fjórum síðustu umferðum tímabilsins til að ná Atalanta og halda sér uppi.
Athugasemdir