mán 04. maí 2015 18:51
Ívan Guðjón Baldursson
Noregur: Jón Daði lagði upp sigurmarkið gegn Molde
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viking 2 - 1 Molde
0-1 Tommy Hoiland ('22)
1-1 Samuel Adegbenro ('44)
2-1 Veton Berisha ('72)

Viking var rétt í þessu að leggja Molde af velli í norsku efstu deildinni og lagði Jón Daði Böðvarsson sigurmark leiksins upp.

Selfyssingurinn ungi kom inná um miðjan síðari hálfleik og var búinn að leggja upp sigurmark leiksins fyrir Veton Berisha átta mínútum síðar.

Steinþór Þorsteinsson kom af bekknum á 79. mínútu leiksins og var Indriði Sigurðsson allan tímann á bekknum hjá Viking sem er með níu stig eftir sex umferðir.

Molde er í fjórða sæti deildarinnar með tíu stig, sex stigum á eftir toppliði Rosenborg sem er búið að vinna fimm leiki og gera eitt jafntefli.
Athugasemdir
banner
banner
banner