Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 04. maí 2015 06:00
Magnús Már Einarsson
Patrik Atlason í ÍR (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR hefur fengið framherjann Patrik Snæ Atlason í sínar raðir fyrir átök sumarsins í 2. deildinni.

Patrik er fæddur árið 1994 en hann lék með Víkingi og FH í yngri flokkunum og kom talsvert við sögu í 1. deildinni með fyrrnefnda liðinu árið 2012.

Í fyrravor gekk Patrik til liðs við Njarðvík og ætlaði að spila með liðinu í 2. deildinni.

Slæm hnémeiðsli fyrir ári síðan komu hins vegar í veg fyrir þær áætlanir hans.

Patrik er kominn af stað á nýjan leik og verður með ÍR-ingum í sumar.
Athugasemdir
banner
banner