Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 04. maí 2015 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Rússland: Ragnar og félagar í öðru sæti fyrir lokasprettinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arsenal Tula 0 - 3 Krasnodar
0-1 Roman Shirokov ('38)
0-2 Ari da Silva ('55)
0-3 Ricardo Laborde ('91)

Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn í liði Krasnodar sem lagði fallbaráttulið Arsenal Tula af velli í rússnesku deildinni í dag.

Rússneski landsliðsmaðurinn Roman Shirokov gerði eitt mark og lagði annað upp, rétt eins og brasilíski sóknarmaðurinn Ariclenes da Silva Ferreira, betur þekktur sem Ari.

Raggi Sig og félagar eru því í öðru sæti þegar fjórar umferðir eru eftir, fjórum stigum á undan CSKA Moskvu og sex stigum á eftir toppliði Zenit.

Annað sæti deildarinnar gefur þátttökurétt í undankeppni Meistaradeildarinnar en þriðja og fjórða sætið gefa rétt í undankeppni Evrópudeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner