Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 04. maí 2016 16:11
Magnús Már Einarsson
Dembele á leið í langt bann
Í veseni.
Í veseni.
Mynd: Getty Images
Moussa Dembele, miðjumaður Tottenham, á yfir höfði sér langt bann. Dembele potaði í augað á Diego Costa í leiknum gegn Chelsea á mánudag eins og sjá má hér að neðan.

Dembele hefur nú verið ákærður og enska knattspyrnusambandið segir að atvikið sé litið alvarlegri augum en oftast þegar leikmenn eru ákærðir.

Dembele fer því í lengra en þriggja leikja bann ef hann verður dæmdur sekur.

Hinn 28 ára gamli Dembele fær tíma til klukkan 17:00 á morgun til að svara fyrir sig.

Tottenham og Chelesa hafa einnig fengið ákærur fyrir að hafa ekki stjórn á leikmönnum sínum í leiknum. Mikil læti voru í Lundúnarslagnum og tólf gul spjöld fóru á loft.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner