Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 04. maí 2016 16:30
Elvar Geir Magnússon
Emre Can til í slaginn
Emre Can fagnar með Adam Lallana.
Emre Can fagnar með Adam Lallana.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur staðfest að Emre Can er tilbúinn í slaginn aftur eftir meiðsli. Miðjumaðurinn öflugi hefur verið frá í þrjár vikur vegna meiðsla í ökkla.

Liverpool mætir Villarreal í seinni viðureign liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar á Anfield á morgun. Spænska liðið vann 1-0 í fyrri hálfleiknum.

„Emre Can er tilbúinn og verður klárlega í hóp á morgun," segir Klopp.

Daniel Sturridge gæti byrjað leikinn en Jordan Henderson er á meiðslalistanum.

„Hendo er á góðri leið fyrir EM 2016 en ég veit ekki með Liverpool. Hann er ekki mættur aftur út á völl."
Athugasemdir
banner
banner
banner