Handknattleiksfélag Kópavogs eða HK hafa gert nýjan samning við íþróttamerkjaframleiðandan Macron og tók samningur þeirra á milli gildi þann 1. Maí. Að því tilefni hefur félagið birt þann búning sem HK mun spila í í sumar.
Macron mun sjá um hönnun á keppnis og æfingabúningum félagsins til næstu sex ára.
Markmið félagsins er að skapa sér sérstöðu hvað varðar útlit búnings félagsins og skuldbindur Macron sig um að ekkert annað íþróttafélag á Íslandi fái að spila í sömu vörulínu og HK.
Dæmi nú hver fyrir sig.
Fyrir áhugasama er hægt að nálgast HK vörur frá Macron á heimasíðu þeirra http://macron.is/vorur/lidinokkar/hk/.
Athugasemdir