Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 04. maí 2016 15:30
Magnús Már Einarsson
Margrét María ekki með KR í sumar
Margrét fagnar marki með KR.
Margrét fagnar marki með KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Margrét María Hólmarsdóttir verður ekkert með KR í sumar eftir að hafa slitið krossband í Egilshöll á dögunum.

Þetta staðfesti Edda Garðarsdóttir, þjálfari KR, í samtali við Fótbolta.net í dag.

Margrét er ein af reyndari leikmönnum KR en hún skoraði eitt mark í fimmtán leikjum í Pepsi-deildinni í fyrra.

Árið 2014 var Margrét með tíu mörk þegar KR fór upp úr 1. deildinni.

Brasilíski sóknarmaðurinn Fernanda Vieira Baptista kom til KR í dag en hún mun hjálpa til við að fylla skarð Margrétar.

KR endaði í 8. sæti í Pepsi-deild kvenna í fyrra en liðið mætir Breiðabliki í fyrstu umferð eftir viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner