Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í 2. deild í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði.
1. Afturelding
Lokastaða í fyrra: 3. sæti í 2. deild
Afturelding var í toppbaráttunni í 2. deildinni allt síðasta sumar en missti af því að fara upp í lokaumferðinni. Mosfellingar verða því í 2. deild í sumar í áttunda sumarið í röð. Þeim hefur oft á þessum tíma verið spáð upp en ekki náð að stíga skrefið.
Þjálfarinn: Úlfur Arnar Jökulsson tók við þjálfun Aftureldingar í ágúst árið 2014. Úlfur hafði áður verið aðstoðarþjálfari liðsins auk þess sem hann þjálfaði 2 og 3. flokk í Mosfellsbæ. Úlfur þjálfaði þar áður í yngri flokkum hjá Fjölni.
Styrkleikar: Liðið ætti að vera reynslunni ríkari eftir harða toppbaráttu í fyrra og þá sérstaklega yngri leikmenn sem hafa verið að stíga sín fyrstu skref með liðinu. Sóknarleikurinn var í fínum málum í fyrra en Afturelding skoraði næstflest mörk allra liða og fékk mörk úr mörgum áttum. Breddin er meiri en hjá flestum öðrum liðum í deildinni. 22 leikmenn komu við sögu í Lengjubikarnum og margir ungir og efnilegir uppaldir leikmenn eru í og við hópinn.
Veikleikar: Öflugir leikmenn fóru frá liðinu eftir síðasta tímabil og leikmannahópurinn er ekki jafn sterkur á pappírnum í ár og í fyrra. Afturelding var í vandræðum gegn liðunum í efri hlutanum í 2. deildinni í fyrra og gekk illa að vinna leiki gegn þeim. Gengi Aftureldingar á undirbúningstímabilinu var afleitt en liðið tapaði meðal annars fyrir þremur liðum úr 3. deild í Lengjubikarnum. Liðið þarf að spila mun betur í sumar ef það ætlar upp.
Lykilmenn: Arnór Breki Ásþórsson, Ferran Garcia Castellanos, Wentzel Steinarr Ragnarsson Kamban.
Úlfur Arnar Jökulsson, þjálfari Aftureldingar:
„Spáin kemur á óvart. Við höfum misst mjög marga sterka leikmenn frá því í fyrra á meðan að önnur lið hafa styrkt sig verulega og sum þeirra með 5-8 útlendinga innanborðs. Okkur hefur sömuleiðis gengið bölvanlega á undirbúningstímabilinu en það virðist engu skipta hvað gerist hjá okkur í leikmannamálum eða hvernig gengur á undirbúningstímabili. Okkur er alltaf spáð upp."
„Við settum upp langtímamarkmið haustið 2014 og eitt af þeim markmiðum var 3 ára plan að komast upp. Þá hófst uppbygging að leikmannahóp frá grunni og við höfum náð að þróa og þroskaleikstílinn, hópinn og liðið ár frá ári. Við vorum nálægt þessu í fyrra og það var svekkjandi að enda í 3. sætinu. En við lærðum af síðasta sumri og teljum okkur tilbúna að stíga skrefið til fulls. Við vinnum þó áfram eftir okkar hugmyndafræði og forsendum. 17 af 25 leikmönnum eru uppaldir og okkur finnst mikilvægt að hafa traustan grunn en ekki byggja á sandi. Afturelding skilgreinir sig sem uppeldisklúbb en það er mikilvægt að við komumst upp um deild til að ná okkar markmiðum hvað varðar eflingu afreksstarfs okkar. Við þurfum að geta haldið lengur í okkar efnilegustu leikmenn, búið til meira krefjandi verkefni fyrir þá og sömuleiðis mótað sterkari æfingahópa með sterkum aðkomumönnum. "
„Nú er einfaldlega komið að því að við stígum þetta skref og komum okkur upp úr 2.deild. Við áttum okkur samt fyllilega á því að þetta verður rosalega erfitt. Fyrirfram séð verður afar erfitt að koma í veg fyrir að Vestri og Huginn með sínar útlendingahersveitir fljúgi upp. Magni verða líka mjög sterkir og eru að leggja allt í að komast upp, og hafa margoft gefið það út. Njarðvík hafa einnig litið mjög vel út í vetur og þetta verður bara hörkubarátta. Við erum tilbúnir í þá baráttu."
Komnir:
Arnar Steinn Hansson frá Þrótti V.
Aron Ingi Kevinsson frá Fram
Baldur Búi Heimisson frá FH
Gunnar Logi Gylfason frá Hvíta Riddaranum
Halldór Jón Sigurður Þórðarson frá Fram
Jökull Steinn Ólafsson frá Fram
Sigurður Hrannar Björnsson frá Víking
Steinar Ægisson frá Hvíta Riddaranum
Farnir
Alexander Aron Davorsson í Þrótt V
Anton Freyr Ársælsson í Fjölni (var á láni)
Atli Fannar Jónsson í HK
Bergsteinn Magnússon í Huginn
Birkir Þór Guðmundsson í Þrótt R.
Egill Jóhannsson í KFS
Kristinn Jens Bjartmarsson
Illugi Þór Gunnarsson hættur
Nik Anthony Chamberlain í Huginn
Þorgeir Páll Gíslason í Þrótt V
Fyrstu leikir Aftureldingar
6.maí Völsungur - Afturelding
13. maí Afturelding – Huginn
20. maí Sindri – Afturelding

