Kvennalið Aftureldingar/Fram hefur styrkt sig fyrir komandi átök í 1. deild kvenna.
Afturelding/Fram er búið að tryggja sér þjónustu Janet Egyr og Samira Suleman, sem koma báðar úr röðum Víkings Ólafsvíkur.
Afturelding/Fram er búið að tryggja sér þjónustu Janet Egyr og Samira Suleman, sem koma báðar úr röðum Víkings Ólafsvíkur.
Samira greindist með æxli í maga sem var fjarlægt með aðgerð í fyrra. Kvennaboltinn sýndi mikla samheldni þegar Samira greindist með æxlið og voru knattspyrnufélög dugleg að styrkja hana fyrir aðgerðina.
Samira var gríðarlega öflug á tíma sínum í Ólafsvík þar sem hún skoraði 23 mörk í 25 deildarleikjum.
Egyr er öflugur varnarmaður sem á 33 leiki að baki fyrir Ólafsvík á síðustu tveimur árum.
Athugasemdir