Heimild: SkySports
Diego Poyet, leikmaður West Ham er staðráðinn í að sanna sig hjá West Ham og vill helst forðast að vera lánaður aftur til annars liðs.
Poyet var í láni hjá Huddersfield á seinustu leiktíð þegar West Ham voru undir stjórn Sam Allardyce en Poyet kom frá Charlton síðasta sumar.
„Ég vil fyrst og fremst vera hjá West Ham. Hér vil ég vera og spila. Ef stjórinn segir mér að mér vegni betur fari ég á láni og fái að spila, þá virði ég það og geri það."
„En þar til mér er sagt að fara mun ég ekki fara neitt. Ef þú ert ungur leikmaður og spilar ekki, þá viltu standa þig þegar þú færð nýjan stjóra, komast í góðu bækurnar hans og hann treysti þér," segir Poyet en Slaven Bilic tekur við stjórn West Ham fyrir tímabilið.
Athugasemdir