England 1-0 Þýskaland (Eftir framlengingu)
1-0 Fara Williams, víti ('110)
1-0 Fara Williams, víti ('110)
England og Þýskaland spiluðu í kvöld um bronsið á HM kvenna í Kanada.
England tapaði á eftirminnilegan hátt á móti Japan í undanúrslitum, en þær þýsku töpuðu á móti Bandaríkjunum.
Ekkert var skorað í venjulegum leiktíma og því þurfti að grípa til framlengingu.
Það voru Englendingar sem náðu að skora í framlengingunni, en þar var að verki hin reynda Fara Williams úr vítaspyrnu.
Ensku stelpurnar tóku því bronsið og voru mjög ánægðar í leikslok.
Athugasemdir