Viðar Örn Kjartansson var í byrjunarliði Jiangsu Sainty í kínversku ofurdeildinni í dag.
Viðar og félagar heimsóttu fallbaráttulið Guizhou Renhe og gerði Viðar eina mark leiksins í fyrri hálfleik.
Viðar og félagar heimsóttu fallbaráttulið Guizhou Renhe og gerði Viðar eina mark leiksins í fyrri hálfleik.
Jiangsu er í sjötta sæti kínversku deildarinnar þegar tímabilið er hálfnað, sjö stigum frá meistaradeildarsæti.
Þetta er sjöunda deildarmark Viðars, sem er kominn aftur í byrjunarlið Jiangsu í kjölfar þjálfaraskipta eftir bekkjarsetu í nokkrum leikjum.
Markahæsti maður deildarinnar er með ellefu mörk og hefur Viðar seinni helming tímabilsins til að ná honum.
Athugasemdir