Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   lau 04. júlí 2015 19:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn Evrópumeistari U17 kvenna
Spænsku stelpurnar eru Evrópumeistarar U17
Spænsku stelpurnar eru Evrópumeistarar U17
Mynd: Getty Images
Spánn 5-2 Sviss
1-0 Luis García ('6)
2-0 Luis García ('13)
3-0 Sjálfsmark ('50)
3-1 Géraldine Reuteler ('55)
4-1 Carmen Menayo ('64)
4-2 Amira Arfaoui ('78)
5-2 Lorena Navarro ('80)

Spánn varð í dag Evrópumeistari U17 kvenna eftir sigur á Sviss í úrslitaleik mótsins, sem að fór fram á Vodafone-vellinum í dag.

Spánn byrjaði af krafti og skoraði strax á fimmtu mínútu, en Luis García kom þá liðinu yfir. Garcia bætti við öðru marki á tólftu mínútu og þannig var staðan í hálfleik.

Sviss byrjaði betur í seinni hálfleik, en það voru samt sem áður spánverjar sem skoruðu næsta mark og staðan var því orðin 3-0.

Géraldine Reuteler minnkaði muninn fyrir Sviss í 3-1 með fallegu marki, áður en Carmen Menayo kom Spáni aftur í 4-1.

Liðin skoruðu svo sitthvort markið áður en yfir lauk og lokatölur því 5-2 sigur Spánar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner