Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   lau 04. júlí 2015 07:30
Eyþór Ernir Oddsson
Heimild: Daily Mail 
Stuðningsmenn Atletico munu ekki fyrirgefa De Gea fari hann til Real
,,Ég er með tvö háskólapróf!
,,Ég er með tvö háskólapróf!" gæti De Gea verið að segja hér. Ólíklegt en hver veit?
Mynd: EPA
David de Gea, markvörður Manchester United hefur verið varaður við því að hann muni eyðileggja samband sitt við stuðningsmenn Atletico Madrid, fari hann til Real Madrid.

Mikill orðrómur hefur verið um brottför De Gea til Real Madrid og sérstaklega eftir að hann sást í Madrid í vikunni, en þar er hann að eigin sögn í fríi.

De Gea gekk til liðs við Manchester United frá Atletico fyrir 18,9 milljónir árið 2011 og vann Evrópudeildina ári seinna.

„Stuðningsmenn Atletico munu ekki fyrirgefa De Gea ef hann fer til Real, það er víst," segir Tomas Ujfalusi, fyrrum samherji De Gea hjá Atletico.

„Þetta verður ekki auðveld ákvörðun fyrir hann. Það væri einnig óvænt fyrir mér því hann er stuðningsmaður Atletico, hjarta hans á yngri árum var hjá Real Madrid."

„Fyrir mér er þó De Gea betri en Courtois og Cech. Ég vann með honum í meira en tvö ár og hann spilaði ótrúlega vel. Þetta er erfitt að segja en Cech er tíu árum eldri en Courtois og De Gea. Byrjun De Gea í Manchester var ekki auðveld en núna held ég að hann sé kominn til að vera og spilar vel."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner