Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 04. júlí 2015 12:36
Elvar Geir Magnússon
Úrslitaleikur EM U17 kvenna í dag - Frábær dagskrá
Spænska liðið.
Spænska liðið.
Mynd: Getty Images
Úrslitaleikur í lokakeppni EM U17 kvenna fer fram á Valsvelli í dag laugardaginn 4. júlí og verður blásið til leiks klukkan 16:00. Það verður frábær dagskrá fyrir leikinn og svo kemur í ljós hvort það verða Spánverjar eða Svisslendingar sem lyfta bikarnum í leikslok.

Fyrir leik verður boðið upp á grillaðar pylsur og ávaxtasafa, knattþrautir og hoppukastala fyrir börnin, landsliðskonur mæta á svæðið, árita plaköt og heilsa upp á krakkana sem mæta og boðið verður upp á happdrætti þar sem hægt er að vinna miða á A-landsleiki karla og kvenna.

Þessi dagskrá hefst kl. 14:30. Komið og sjáið efnilegustu knattspyrnukonur Evrópu leika listir sínar.
Athugasemdir
banner
banner
banner