David Luiz, varnarmaður PSG hefur sagt að hann gæti farið til Bandaríkjanna að spila fótbolta áður en ferlinum líkur.
Andrea Pirlo, Steven Gerrard, Didier Drogba og Frank Lampard eru meðal þeirra sem spila í Bandaríkjunum núna og er Luiz spenntur fyrir að gera það sama.
„Eftir fimm eða sex ár verður MLS ein af stærstu deildum heims. Það eru frábærir leikmenn þar núna og það er heillandi."
„Það gæti vel verið að ég fari þangað að spila. Það er gaman að sjá hvernig fótboltinn er þarna. Það er fullt hús á vináttuleikjum, það er magnað," sagði Luiz.
Athugasemdir