Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Swansea þegar liðið fær hans gömlu félaga í Tottenham í heimsókn í dag.
Tottenham vonast til að fylgja á eftir stórkostlegum 4-1 sigri á Man City um síðustu helgi en Tottenham situr í 8.sæti á meðan Swansea er í 12.sæti.
Harry Kane er í fremstu víglínu hjá Tottenham en honum tókst loksins að komast á blað um síðustu helgi.
Byrjunarlið Swansea:Fabianski, Rangel, Fernandez, Williams (C), Taylor, Ki, Shelvey, Ayew, Sigurdsson, Montero, Gomis.
Byrjunarlið Tottenham:Lloris (c), Walker, Alderweireld, Vertonghen, Davies; Alli, Dier; Chadli, Eriksen, Lamela; Kane
Athugasemdir