Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 04. október 2015 12:59
Arnar Geir Halldórsson
Championship: Jóhann Berg lagði upp í dramatísku jafntefli
Jóhann Berg Guðmundsson
Jóhann Berg Guðmundsson
Mynd: Getty Images
Charlton Athletic 2-2 Fulham
0-1 Ryan Tunnicliffe ('33)
0-2 Ross McCormack ('59)
1-2 Johnnie Jackson ('81)
2-2 Jordan Cousins (´90)

Einn leikur fór fram í Championship deildinni í dag þar sem Jóhann Berg Guðmundsson og félagar fengu Fulham í heimsókn.

Jóhann Berg var í byrjunarliði Charlton venju samkvæmt en það voru gestirnir sem byrjuðu leikinn betur.

Mörk frá Ryan Tunnicliffe og Ross McCormack komu Fulham í 2-0 eftir klukkutíma leik en undir lokin kviknaði á Jóa Berg og félögum.

Jóhann lagði upp mark Johnnie Jackson á 81.mínútu og þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma jafnaði Jordan Cousins leikinn.

Charlton hefur tíu stig eftir tíu umferðir og situr í 17.sæti deildarinnar en Fulham er í 13.sæti.
Athugasemdir
banner
banner