Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 04. október 2015 12:15
Arnar Geir Halldórsson
Heimild: Víkurfréttir 
Gunnar tekur við kvennaliði Keflavíkur (Staðfest)
Gunnar Magnús Jónsson þjálfar kvennalið Keflavíkur næstu tvö árin
Gunnar Magnús Jónsson þjálfar kvennalið Keflavíkur næstu tvö árin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Magnús Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Keflavíkur og gerir hann tveggja ára samning við félagið.

Frá þessu er greint á vef Víkurfrétta í dag en Gunnar Magnús var í þjálfarateymi karlaliðsins sem kolféll úr Pepsi deildinni í sumar.

Gunnar hefur einnig reynslu úr þjálfun hjá yngri flokkum Keflavíkur auk þess sem hann þjálfaði kvennalið Grindavíkur og karlalið Njarðvíkur um tíma.

Gunnar tekur við liðinu af Arngrími Jóhanni Ingimundarsyni og Gunnlaugi Kárasyni sem stýrðu Keflavík í sameiningu á síðustu leiktíð.

Keflavík vann ekki leik í A-riðli 1.deildar kvenna í sumar og fékk aðeins eitt stig úr tíu leikjum.


Athugasemdir
banner
banner
banner