Líklega í fullt starf hjá KSÍ
Þoravldur Örlygsson hefur látið af störfum sem þjálfari Keflavíkur en þetta kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynningu sem hann og félagið sendu frá sér í kvöld.
Útlit er fyrir að Þorvaldur fari í fullt starf hjá KSÍ á næstunni.
Útlit er fyrir að Þorvaldur fari í fullt starf hjá KSÍ á næstunni.
„Þorvaldur hefur samhliða þjálfun meistaraflokks karla hjá knattspyrnudeildinni starfað í hlutastarfi hjá KSÍ sem þjálfari U-19 ára landsliðs karla. KSÍ hyggst nú gera þetta að 100% starfi sem mun hafa þau áhrif að Þorvaldur getur ekki þjálfað félagslið samhliða," segir í fréttatilkynningu frá Keflavík.
U19 ára landslið karla er í Úkraínu þessa stundina þar sem undanriðill EM fer fram.
Þorvaldur tók við þjálfun Keflavíkur síðastliðið haust eftir að hafa stýrt HK í tvö tímabil þar á undan.
Keflavík endaði í 3. sæti í Inkasso-deildinni í sumar eftir fall úr Pepsi-deildinni í fyrra.
Bjarni Jóhannsson var orðaður við þjálfarastöðu liðsins í íslenska slúðurpakkanum um helgina en reikna má með að fleiri nöfn heyrist í umræðunni næstu dagana.
Yfirlýsingin í heild
Sameiginleg yfirlýsing frá Knattspyrnudeild Keflavíkur og Þorvaldi Örlygssyni
Þorvaldur Örlygsson sem tók við þjálfun meistaraflokks karla haustið 2015 lætur nú af störfum sem þjálfari félagsins og mun að öllum líkindum hverfa til starfa hjá Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ) í fullu starfi nú í haust.
Þorvaldur hefur samhliða þjálfun meistaraflokks karla hjá knattspyrnudeildinni starfað í hlutastarfi hjá KSÍ sem þjálfari U-19 ára landsliðs karla. KSÍ hyggst nú gera þetta að 100% starfi sem mun hafa þau áhrif að Þorvaldur getur ekki þjálfað félagslið samhliða.
Knattspyrnudeild Keflavíkur þakkar Þorvaldi fyrir vel unnin störf á liðnu ári og ánægjulegt samstarf og óskar honum velfarnaðar í starfi hjá KSÍ.
Fyrir hönd Knattspyrnudeildar Keflavíkur
Jón G. Benediktsson, formaður


