Heimild: Blikar.is
Dean Martin hefur verið ráðinn þjálfari 2. flokks Breiðabliks ásamt Páli Einarssyni.
Hinn 42 ára gamli Dean var í sumar spilandi aðstoðarþjálfari hjá ÍBV. Eftir tímabilið ræddu Eyjamenn við Dean um að taka við þjálfarastarfinu en hann fékk á endanum ekki tilboð um starfið.
Hinn 42 ára gamli Dean var í sumar spilandi aðstoðarþjálfari hjá ÍBV. Eftir tímabilið ræddu Eyjamenn við Dean um að taka við þjálfarastarfinu en hann fékk á endanum ekki tilboð um starfið.
Páll tók við 2. flokki Breiðabliks af Arnari Bill Gunnarssyni í upphafi árs en hann þjálfaði áður Þrótt.
Jón Aðalsteinn Kristjánsson var einnig í þjálfarateymi 2. flokks Blika á síðasta tímabili en hann tók við meistaraflokku KF á dögunum.
,,2.flokkur karla er gríðarlega fjölmennur í ár og munu fleiri þjálfarar vera kynntir í þjálfarateymi flokksins á næstu dögum," segir á blikar.is.
Athugasemdir