Tveir leikir eru á dagskrá þýsku Bundesligunnar í dag en þrjú af þeim fjóru liðum sem eru í eldlínunni í dag eru að berjast í neðri hlutanum.
Darmstadt fær Hamburger í heimsókn í algjörum fallbaráttuslag því Hamburger er enn án sigurs á botni deildarinnar og Darmstadt er tveim sætum ofar með átta stig úr tólf leikjum.
Klukkan 16:30 fær Augsburg heimsókn frá Frankfurt en íslenski landsliðsframherjinn Alfreð Finnbogason glímir við meiðsli og verður ekki með Augsburg í dag.
Liðinu hefur gengið illa að skora á meðan Alfreðs nýtur ekki við en Augsburg hefur gert markalaust jafntefli í síðustu tveim leikjum sínum.

Leikir dagsins
14:30 Darmstadt - Hamburger
16:30 Augsburg - Frankfurt
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir