Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 04. desember 2017 20:25
Ívan Guðjón Baldursson
Bose mótið: Stjarnan í úrslit eftir sigur gegn Fjölni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir 0 - 1 Stjarnan
0-1 Ævar Ingi Jóhannesson ('18)

Stjarnan er komin í úrslitaleik Bose mótsins eftir eins marks sigur gegn Fjölni í lokaumferð riðlakeppninar.

Ævar Ingi Jóhannesson gerði eina markið þegar hann skallaði boltanum yfir Þórð Ingason, markvörð Fjölnis, og setja hann í fjærhornið.

Bæði lið lögðu FH-inga að velli í fyrstu umferð og spennandi að sjá hvernig Stjarnan stendur sig í úrslitaleiknum.

Stjarnan keppir við Breiðablik, KR eða Víking R. í úrslitum. Blikar eru líklegustu andstæðingarnir vegna markatölu eftir 8-1 sigur gegn Víkingi R. Þeir spila við KR í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner