Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 04. desember 2017 12:42
Elvar Geir Magnússon
Nýr veitingastaður Suarez fær góða dóma
Mynd: Chalito
Luis Suarez, sóknarmaður Barcelona, hefur opnað veitingastað sem heitir Chalito og er staðsettur á Römblunni.

Veitingastaðurinn sérhæfir sig í vinsælum réttum frá heimalandi hans, Úrúgvæ, og einnig frá Argentínu.

Staðurinn hefur fengið góða dóma og sagt að matseðillinn sé fjölbreyttur og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.

Frönsku kartöflurnar eru einn vinsælasti réttur staðarins en þær eru bornar fram með eggjum og lauk.

Suarez á einnig strandbar í Barcelona svo hann er heldur betur farinn að gera sig gildandi í veitingabransanum.

Innan vallarins hefur Suarez hlotið nokkra gagnrýni á þessu tímabili en frammistöður hans hafa verið býsna misjafnar. Barcelona er þó í góðum málum með fimm stiga forystu á toppi La Liga.
Athugasemdir
banner
banner