Brynjar Atli Bragason, markvörður úr Njarðvík, æfði á dögunum með yngri liðum Bolton Wanderers á Englandi.
Hann æfði með U18 og U23 liði Bolton auk þess að vera á markmannsæfingum hjá félaginu.
Brynjar Atli, sem fæddur er árið 2000, varð fimmti yngsti leikmaður Njarðvíkur á Íslandsmóti þegar hann stóð vaktina í markinu í sigurleik gegn Vestra í september 2016.
Brynjar Atli hefur allan sinn ferill leikið með Njarðvík og þrátt fyrir ungan aldur hefur hann leikið sex leiki með Njarðvík í deildar- og bikarkeppni.
Hann á einnig að baki fimm leiki með U17 landsliði Íslands og einn með U18 í 3-0 sigri á Slóvakíu í september.
Í fyrra fór Brynjar Atli einnig til Englands á reynslu en þá æfði hann með Sheffield United.
Athugasemdir