Fotbolti.net
05.01.17 - 09:00
Magnús Már Einarsson

Elfar Freyr til Horsens á láni (Staðfest)

Elfar Freyr Helgason.

Elfar Freyr Helgason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danska félagið Horsens hefur fengið varnarmanninn Elfar Frey Helgason á láni frá Breiðabliki en þetta kemur fram á blikar.is.

Elfar Freyr skrifaði undir nýjan þriggja ára samning við Breiðablik áður en hann skrifaði undir lánssamninginn í Danmörku.

Horsens hefur hins vegar forkaupsrétt á Elfari næsta sumar. Elfar fer til Danmerkur um helgina og verður með Horsens í síðari hluta tímabils í Danmörku en vetrarhléinu þar lýkur í febrúar.
Hinn 27 ára gamli Elfar er uppalinn hjá Breiðabliki en hann hefur verið fastamaður í vörn liðsins undanfarin ár.

Árið 2011 fór Elfar til AEK Aþenu í Grikklandi en hann lék einnig með Stabæk í Noregi og Randers í Danmörku áður en hann snéri aftur í Breiðablik árið 2013.

Kjartan Henry Finnbogason spilar með Horsens en nýliðarnir sitja í 7. sæti í dönsku úrvalsdeildinni. Bo Henriksen er þjálfari Horsens en hann þekkir íslenska boltann vel eftir að hafa spilað með Fram, Val og ÍBV á sínum tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.