Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 05. febrúar 2016 21:00
Arnar Geir Halldórsson
Elfar Árni gerir þriggja ára samning við KA
Samningurinn handsalaður
Samningurinn handsalaður
Mynd: Heimasíða KA
Elfar Árni Aðalsteinsson gerði nýjan þriggja ára samning við 1.deildarlið KA fyrr í dag.

Elfar Árni er uppalinn hjá Völsungi á Húsavík en gekk í raðir KA fyrir síðasta tímabil eftir að hafa leikið með Breiðabliki í Pepsi deildinni.

Þessi 26 ára gamli framherji skoraði 13 mörk í deild og bikar fyrir KA í fyrra.

Hann hefur nú endurnýjað samning sinn við félagið til ársins 2018.

KA-menn ætla sér stóra hluti í 1.deildinni næsta sumar en liðið festi kaup á Almarri Ormarssyni frá KR á dögunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner