Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 05. febrúar 2016 21:25
Óðinn Svan Óðinsson
Fótbolta.net mótið: Vængir Júpiters sigruðu Reyni
Vængir Júpiters
Vængir Júpiters
Mynd: Vængir Júpiters
Vængir Júpiters 1-0 Reynir Sandgerði
1-0 Daníel Fernandes Ólafsson ('87)

Fyrsti leikur C-deildar Fótbolta.net mótsins fór fram í kvöld en þar áttust við Vængir Júpiters og Reynir frá Sandgerði.

Leikurinn fór fram á Fjölnisvelli í Grafarvogi og voru það heimamenn sem tóku öll stigin.

Daníel Fernandes Ólafsson skoraði sigurmarkið á 87. mínútu leiksins.

Hjórleifur Þórðarson leikmaður Vængja Júpíters fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiks en það kom ekki að sök.
Athugasemdir
banner
banner
banner