Það er mikið magn leikja á dagskrá á Íslandi yfir helgina þar sem keppt er til úrslita á fyrstu undirbúningsmótum tímabilsins.
KA mætir Þór í úrslitum Kjarnafæðismótsins í Boganum á Akureyri á föstudagskvöldið og þá er einnig keppt í B-deild Fótbolta.net mótsins og á Faxaflóamóti kvenna.
KA mætir Þór í úrslitum Kjarnafæðismótsins í Boganum á Akureyri á föstudagskvöldið og þá er einnig keppt í B-deild Fótbolta.net mótsins og á Faxaflóamóti kvenna.
Stærsti leikur helgarinnar er tæknilega séð ekki um helgina, heldur á mánudagskvöldið þegar Valur mætir Leikni R. í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins í Egilshöllinni.
Leiknismenn hafa þar harma að hefna eftir tap í nákvæmlega sama úrslitaleik í fyrra, á meðan Valsarar hafa titil til að verja.
Föstudagur:
Fótbolta.net mótið - B deild - Úrslit
18:00 Keflavík-HK (Reykjaneshöllin)
Faxaflóamót kvenna - Riðill B
19:30 Skínandi-Haukar (Samsung völlurinn)
20:20 Keflavík-Hvíti riddarinn (Reykjaneshöllin)
Kjarnafæðismótið Úrslit
21:00 KA-Þór (Boginn)
Laugardagur:
Fótbolta.net mótið - B deild - Úrslit
13:00 Afturelding-Grótta (N1-völlurinn Varmá)
17:00 Haukar-Grindavík (Reykjaneshöllin)
Faxaflóamót kvenna - Riðill A
11:00 Selfoss-Afturelding (JÁVERK-völlurinn)
Kjarnafæðismótið Úrslit
17:00 Leiknir F.-Magni (Boginn)
Sunnudagur:
Kjarnafæðismótið Úrslit
15:00 Þór 2-KA 2 (Boginn)
17:00 Völsungur-KF (Boginn)
Mánudagur:
Reykjavíkurmót karla Úrslit
19:00 Valur - Leiknir R. (Egilshöll - Beint á SportTV.is)
Athugasemdir