Ronald Koeman og Sergio Agüero hafa verið valdir bestir í ensku úrvalsdeildinni í janúar.
Aguero skoraði fimm mörk í fjórum leikjum fyrir Manchester City í janúar á meðan Koeman stýrði Southampton til þriggja sigra í fjórum leikjum.
Aguero skoraði fimm mörk í fjórum leikjum fyrir Manchester City í janúar á meðan Koeman stýrði Southampton til þriggja sigra í fjórum leikjum.
Aguero skoraði í 2-1 sigri á Watford, gerði tvö mörk í 4-0 sigri á Crystal Palace og gerði svo bæði mörkin þegar Man City gerði 2-2 jafntefli við West Ham.
Southampton byrjaði mánuðinn á því að tapa fyrir Norwich en hefur síðan þá unnið Watford, West Brom og Manchester United án þess að fá mark á sig.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir