Heimild: Mirror
Daniel Sturridge er reiðubúinn að yfirgefa Liverpool í sumar samkvæmt Mirror og Daily Mail.
Það hefur hvorki gengið né rekið hjá Sturridge eftir frábært samstarf hans með Luis Suarez fyrir tveimur árum, enda hefur sóknarmaðurinn verið meira og minna meiddur síðan.
Það hefur hvorki gengið né rekið hjá Sturridge eftir frábært samstarf hans með Luis Suarez fyrir tveimur árum, enda hefur sóknarmaðurinn verið meira og minna meiddur síðan.
Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, er ósáttur með hversu langdregin meiðsli sóknarmannsins eru og er Sturridge orðinn þreyttur á því að verið sé að draga orð hans og hollustu við félagið í vafa.
Chelsea, Tottenham, Arsenal og West Ham gætu öll verið reiðubúinn að greiða væna fúlgu fjár fyrir sóknarmanninn, sem virðist loksins vera klár í slaginn með Liverpool eftir langa fjarveru.
Athugasemdir