Reynir Leósson, þjálfari HK var vitaskuld ánægður með sigur síns liðs Í B deild fótbolta.net mótsins í kvöld.
HK vann þá góðan 3-0 sigur á Keflavík en öll mörkin komu í seinni hálfleik.
Reynir hrósaði Keflavíkur liðinu í leikslok.
HK vann þá góðan 3-0 sigur á Keflavík en öll mörkin komu í seinni hálfleik.
Reynir hrósaði Keflavíkur liðinu í leikslok.
„Keflavík er með feikilega gott lið. Þeir eru lið sem þjálfari ætti að geta farið blindandi upp um deild með."
„Við vorum sprækir í seinni hálfleik og náðum að refsa þeim."
Hann segist ánægður með titilinn en auðvitað sé sumarið það sem máli skiptir.
„Þetta er febrúartitill, auðvitað er skiptir það máli sem gerist í sumar en það skemmir ekki fyrir að búa til sigurhefð."
Einhver orðaskipti urðu á milli Reynis og Þorvaldar Örlygssonar, þjálfara Keflavíkur en Reynir segir það aðeins hafa verið í hita leiksins og þeir séu góðir.
„Ég spilaði undir Þorvaldi og við erum félgar úr sjónvarpi en við erum góðir. Það er aðeins í hita leiksins sem kallinn æsir sig."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir