Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 05. febrúar 2016 16:00
Fótbolti.net
Twitter - Danaregla í fótboltann
Böðvar Böðvarsson: Þakka virkilega fallegar kveðjur sem ég hef fengið undanfarna daga, kær kveðja frá Dubai
Böðvar Böðvarsson: Þakka virkilega fallegar kveðjur sem ég hef fengið undanfarna daga, kær kveðja frá Dubai
Mynd: Instagram
Mynd: Fótbolti.net
Hér að neðan má sjá brot af boltaumræðunni á samskiptasíðunni Twitter í boði Vodafone. Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum.

Notið kassamerkið #fotboltinet fyrir boltaumræðuna á Twitter. Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet



Victor Ingi Olsen, starfsmaður Stjörnunnar:
Varð rétt í þessu vitni að manni sem býr í GBR spyrja Dúlluna til nafns... Nú hef ég séð allt... #heimsfrægur #fotboltinet

Ómar Ingi Guðmundsson, fótboltaþjálfari:
Þessir ungu leikmenn sem KR er að búa til pláss fyrir eru vonandi varnarsinnaðir

Hörður Snævar Jónsson, 433.is:
Gary Martin, Hómbert, Morten Beck = Mörk í tonnatali í Vesturbænum næsta sumar ef ekkert breytist

Haukur Þorsteinsson, stuðningsmaður Stjörnunnar:
Núna getur Bjarni Guð sagt svo allir í liðinu skilji:
Keo, keo leo - og jeg skal have sugerkage

Heiðar Númi Hrafnsson, markvörður Hvíta Riddarans:
Styttist í að það þurfi að setja Danareglu í boltanum. 9+2 kannski. Gengur ekki lengur #fotboltinet #kanareglan

Arnar Smárason, stuðningsmaður Kaiserslautern:
Vona svo innilega að Jón Daði starti í kvöld. Mikilvægur hlekkur í #RoadtoBundesliga

Bjarki Kristjánsson, fótboltaáhugamaður:
Hrikalegur skellur að Rosicky sé líklega frá út tímabilið. Spurning hvort að hann fari ekki að hætta þessu bara. #fotboltinet

Magnús Sigurbjörnsson, stuðningsmaður Liverpool:
Þessi Teixeira saga er eiginlega grátleg. LFC vantaði hann. Snöggan og sóknarmiðan leikmann sem er nú horfinn til Kína. Drullusúrt eitthvað.

Harry Redknapp, goðsögn:
Enn annar kallinn kominn til Kína, virðist vera staðurinn til að vera á. Slatti af peningum fyrir leikmenn svo það kemur ekki á óvart að allir séu að fara



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner