Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 05. mars 2015 20:00
Daníel Freyr Jónsson
Alan Curbishley mættur til Fulham á ný
Alan Curbishley.
Alan Curbishley.
Mynd: Getty Images
Alan Curbishley, fyrrum stjóri West Ham og Charlton, hefur verið ráðinn inn í þjálfarateymið hjá Championship-liði Fulham út leiktíðina.

Curbislhey mun þar vera Kit Symons, stjóra liðsins, innan handar út tímabilið, en Fulham féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.

Liðinu hefur gengið afar illa á tímabilinu og hefur 39 stig úr 35 leikjum, en er þó 8 stigum frá fallsæti.

Curbisley starfaði áður sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Fulham, en var rekin úr starfi við ráðningu Felix Magath á síðustu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner