Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 05. mars 2015 06:00
Magnús Már Einarsson
Andri Már í ÍR (Staðfest)
Andri í leik með Selfyssingum í fyrra.
Andri í leik með Selfyssingum í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍR hefur fengið sóknarmanninn Andra Má Hermannsson í sínar raðir.

Hinn 22 ára gamli Andri kom skrifaði undir tveggja ára samning við ÍR.

Andri spilaði með Selfossi í 1. deildinni síðasta sumar en hann spilaði með uppeldisfélagi sínu Fylki í efstu deild árin 2010-2013.

,,Við ÍR ingar bjóðum Andra Má hjartanlega velkominn í hópinn hjá okkur og okkur hlakkar mikið til að njóta sumarsins með þessum snögga og góða sóknarmanni," segir í yfirlýsingu frá ÍR.

ÍR leikur í 2. deildinni í sumar en liðið hefur leik í B-deild Lengjubikarsins annað kvöld. Þá mætir ÍR liði Aftureldingar í Egilshöll.
Athugasemdir
banner
banner