Ekki er útilokað að framherjinn Lukas Podolski snúi aftur í herbúður Arsenal þegar lánssamningur hans hjá Inter rennur út í sumar.
Podolski hefur síður en svo slegið í gegn hjá Inter og á enn eftir að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið eftir að hafa komið til liðsins í janúar.
Podolski hefur síður en svo slegið í gegn hjá Inter og á enn eftir að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið eftir að hafa komið til liðsins í janúar.
,,Allt getur gerst," sagði Ali Pektas, umboðsmaður Podolski.
,,Eins og er er hann lánsmaður hjá Inter og þegar sá samningur er á enda gæti hann snúið aftur til Arsenal þar sem hann á enn ár eftir af samningnum."
,,Varðandi framtíð hans, þá er það eina sem ég gæti sagt er að allt getur gerst."
Podolski var nýlega valinn eitt mesta floppið á Ítalíu á tímabilinu.
Sjá einnig:
Podolski næst mesta floppið á Ítalíu
Athugasemdir