Hermann Hreiðarsson kíkti í heimsókn til Englands um síðustu helgi þar sem hann sá sína gömlu félaga í Portsmouth leika gegn Oxford í ensku D-deildinni.
Hermann varð bikarmeistari með Portsmouth árið 2008 en síðan þá hefur liðið fallið á ótrúlegan hátt niður í fjórðu efstu deild.
Á laugardag kíkti Hermann á Fratton Park og í hálfleik kom hann inn á völlinn ásamt nokkrum fyrrum leikmönnum Portsmouth.

Hermann greip að sjálfsögðu míkrafóninn og stjórnaði léttum söng hjá stuðningsmönnum með því að öskra ,,Blue army" eða ,,Blái herinn."
,,Takk fyrir að fá mig. Mér líður eins og ég sé að koma heim," sagði Hermann meðal annars en hann var í þrumustuði eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan.
Athugasemdir