Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 05. mars 2015 10:22
Magnús Már Einarsson
Ómar Friðriksson í Fram (Staðfest)
Mynd: Vikingur.net
Fram hefur fengið hægri bakvörðinn Ómar Friðriksson á láni frá Víkingi.

Hinn 21 árs gamli Ómar er uppalinn hjá KA en hann kom til Víkings fyrir síðasta tímabil.

Í fyrra kom Ómar við sögu í fjórum leikjum hjá Víkingi í upphafi móts áður en hann missti sæti sitt í liðinu.

Í júlí fór hann til Grindavíkur á láni þar sem hann spilaði sjö leiki í 1. deildinni.

Ómar gæti spilað sinn fyrsta leik með Fram annað kvöld en liðið mætir þá KR í Lengjubikarnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner