Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 05. mars 2015 06:00
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu mörkin: Glæsileg mörk í leik Keflavíkur og Vals
Sindri Snær Magnússon skoraði glæsilegt mark.
Sindri Snær Magnússon skoraði glæsilegt mark.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var fjörugur leikur í Lengjubikarnum í gær þar sem Keflavík og Valur gerðu jafntefli 3-3 en SportTv sýndi leikinn í beinni. Búið er að klippa saman markasyrpu úr leiknum. Flott mörk voru skoruð, sérstaklega þau tvö fyrstu.

Smelltu hér til að sjá mörkin sex úr leiknum

Sindri Snær Magnússon skoraði með hreint mögnuðu skoti fyrir utan teig og kom Keflavík yfir eftir níu mínútna leik. Haukur Páll Sigurðsson vildi ekki vera síðri maður og jafnaði með viðstöðulausu skoti.

Andri Fannar Stefánsson kom Val yfir í leiknum, Hörður Sveinsson skoraði með skalla og jafnaði fyrir hálfleik. Andri Adolphsson endurheimti forystuna fyrir Val en Sigurbergur Elísson átti lokaorðið með hnitmiðuðum skalla.

Smelltu hér til að sjá mörkin sex úr leiknum
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner