Luis Suarez og Fernando Torres eru á meðal fyrrum leikmanna Liverpool sem munu snúa aftur á Anfield síðar í þessum mánuði.
Um er að ræða góðgerðarleik og eins konar kveðjuleik fyrir Steven Gerrard sem mun ganga í raðir LA Galaxy í sumar.
Um er að ræða góðgerðarleik og eins konar kveðjuleik fyrir Steven Gerrard sem mun ganga í raðir LA Galaxy í sumar.
Gerrard verður fyrirliði hjá Liverpool en leikmenn liðsins sem eru ekki í verkefni með landsliðum munu taka þátt í leiknum.
Mótherjarnir verða stjörnulið sem Jamie Carragher mun leiða. Suarez, Torres, Pepe Reina, Dirk Kuyt, John Terry, Xabi Alonso, Thierry Henry og Didier Drogba eru á meðal leikmanna sem munu einnig spila með stjörnuliðinu.
Leikurinn mun fara fram á Anfield þann 29. mars næstkomandi.
Athugasemdir