Eiður Smári Guðjohnsen og félagar í Bolton hafa orðið fyrir áfalli en Zach Clough og Kevin McNaughton munu ekki spila meira með liðinu á tímabilinu.
Hinn 19 ára gamli Clough fór úr axlarlið gegn Reading í fyrradag eftir að hafa skorað sex mörk í tíu leikjum á tímabilinu.
McNaughton er 32 ára gamall varnarmaður sem er í láni frá Cardiff en hann fótbrotnaði gegn Reading.
Annar varnarmaður, David Wheater, meiddist einnig gegn Reading og ljóst er að hann verður frá keppni í átta vikur.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir