Stórt eikartré í Eistlandi hefur verið tilnefnt til verðlauna sem tré ársins 2015. Umrætt tré er staðsett á miðjum fótboltavelli.
Talið er að þettasé eini fótboltavöllur heimsins með eikartré í miðjunni.
Sagan segir að ýmislegt hafi verið reynt til að fjarlægja það án árangurs, til dæmis hafi traktorum Stalíns mistekist það.
Reglulega eru spilaðir leikir á vellinum og leikmenn nota tréð oft sem „batta" í leikjum en tréð má sjá á meðfylgjandi mynd.
Athugasemdir