Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 05. apríl 2017 08:00
Elvar Geir Magnússon
Gylfi opinberar hvern í deildinni hann myndi helst vilja í Swansea
Gylfi væri til í að hafa Aguero í sínu liði.
Gylfi væri til í að hafa Aguero í sínu liði.
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson hefur svarað spurningum frá lesendum Fótbolta.net en afraksturinn verður birtur í heild sinni hér á vefnum á morgun, fimmtudag.

Benedikt Hendriksson sendi spurninguna: Ef þú gætir valið einn leikmann úr ensku úrvalsdeildinni til að koma til Swansea, hver væri það? - Gylfi valdi leikmann úr Manchester City.

„Ekkert að því að hafa Aguero uppá topp, hann myndi skila nokkrum mörkum á hverju tímabili," svaraði Gylfi.

Það er alveg ljóst að Sergio Aguero gæti hjálpað Swansea að halda sér í úrvalsdeildinni en liðið er í harðri fallbaráttu.

Gylfi svarar meðal annars spurningum um erfiðasta andstæðinginn, með hvaða liðum hann spilar í FIFA, hver í landsliðinu sé bestur í reitarbolta og hver hafi verið besti vinur hans í Tottenham á vefnum á morgun.

Sjá einnig:
Gylfi fær sér stundum ananas á pizzu
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner