Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 05. maí 2015 17:42
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Juventus og Real Madrid: Bale byrjar
Gareth Bale er í byrjunarliði Real.
Gareth Bale er í byrjunarliði Real.
Mynd: Getty Images
Fyrsti undanúrslitaleikur Meistaradeildarinnar er í kvöld þar sem ríkjandi meistarar Real Madrid heimsækja Ítalíumeistara Juventus.

Leikurinn er sýndur beint og í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport 18:45 en fylgst verður með gangi mála í úrslitaþjónustu á forsíðu.

Sjá einnig:
Meistaraspáin: Ekki markaflóð í kortunum

Gareth Bale er í byrjunarliði Real en við hans hlið er sjálfur Cristiano Ronaldo.

Paul Pogba, Luka Modric og Karim Benzema eru allir fjarri góðu gamni í kvöld en Arturo Vidal er fyrir aftan framherjana.

Byrjunarlið Real Madrid: Casillas, Carvajal, Varane, Ramos, Marcelo, Pepe, Kroos, Isco, James, Bale, Ronaldo.

Byrjunarlið Juventus: Buffon, Lichtsteiner, Bonucci, Chiellini, Evra, Marchisio, Pirlo, Sturaro, Vidal, Tevez, Morata.



Athugasemdir
banner
banner
banner