Hægri bakvörðurinn Nathaniel Clyne segist vera opinn fyrir því að leika áfram með Southampton á næsta tímabili.
Clyne verður samningslaus sumarið 2016 en bæði Manchester United og Chelsea hafa sýnt honum áhuga.
Clyne verður samningslaus sumarið 2016 en bæði Manchester United og Chelsea hafa sýnt honum áhuga.
Clyne segist vera opinn fyrir því að spila áfram með Southampton á næsta tímabili og jafnvel skrifa undir nýjan samning við félagið.
„Ég nýt þess að að spila með Southampton í hverri viku í liði sem er á uppleið. Ég er ánægður að spila með Southampton og er glaður til í að vera áfram hjá Southampton líka," sagði Clyne.
„Umboðsmaður minn er í viðræðum og ég leyfi honum að sjá um það á meðan ég einbeiti mér að fótboltanum."
Athugasemdir